Letra de I Just Can't Wait To Be King (Icelandic) de Disney


Letras de Disney

Letra de I Just Can't Wait To Be King (Icelandic)
Simba:
Ég ætla að verða konungur
Voldugur og klár

Zazu:
Já, en aldrei sá ég áður kóng
Með svona lítið hár

Simba:
Ég ætlað verða vöðvafjall
Það verður ekkert smátt
Vaka yfir ríki mínu
Og öskra rosa hátt

Zazu:
Ennþá er árangurinn fremur agnarsmár

Simba:
En ég ætlað verða kóngur klár

Zazu:
Þú átt ýmislegt ólært ennþá, ungi herra
Ef þú heldur ...

Simba:
Enginn segir komd'inn

Zazu:
Heyrðu, það sem ég sagði ...

Nala:
Enginn segir farð'út

Zazu:
Það sem ég átti við var ...

Simba:
Enginn segir hættu

Zazu:
Það sem þú skilur ekki

Simba og Nala:
Enginn segir sjáðu

Zazu:
Sjáðu nú til

Simba:
Laus við nuð og nudd í þér

Zazu:
Kemur ekki til greina

Simba:
Ég mun gera hvað sem er

Zazu:
Nú er kominn tími til
Að hlustir þú á mig

Simba:
Kóngur getur ef hann vill
Sett tappa upp í þig

Zazu:
Ef svon'er komið konungsdæmi
Kóngurinn er naut
Ég segi upp vinnu, sármóðgaður
Og svíf svo mína braut
Þett'er algjörlega óþolandi fár

Simba:
En ég ætla að verða kóngur klár

Allir horfa í austur
Allir horfa í vestur
Allir horfa á þann sem
Er allra ljóna mestur

Zazu:
Ekki ennþá!

Kór:
Sérhver skepna syngur honum óð
Sauðnautin og krókódíla stóð
Simbi ríkir sæll í þúsund ár
Víst verður Simbi kóngur klár
Því ég ætla að verða kóngur klár
Já, ég ætla að verða kóngur klár
Já, ég verða skal kóngur klár
De nuevo a: Disney Letras


Soundtracks / Top Hits / One Hit Wonders / TV Themes / Miscellaneous